Sérsvið Anno 1901 lögmannsstofu

Anno 1901

Þjónusta

Lögmannsstofan veitir alhliða lögfræðiþjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar.

Lögmenn stofunnar hafa yfirgripsmikla reynslu og veita sérhæfða ráðgjöf með persónulega þjónustu að leiðarljósi. Hér má finna yfirlit yfir helstu sérsvið stofunnar.

Málflutningur

Lögmenn stofunnar eru með réttindi á öllum dómsstigum, Héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti.

Fyrirtækjaþjónusta

Lögmannsstofan hefur sérhæft sig í alhliða þjónustu við fyrirtæki af ýmsum stærðum. Lögmenn stofunnar hafa áratugareynslu á þessu sviði.

Fjármálaréttur

Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu á sviði fjármálaréttar, með ráðgjöf til verðbréfafyrirtækja og banka. Einnig hafa lögmenn stofunnar verið í stjórnum fjármálafyrirtækja.

Samningaréttur

Lögmannsstofan hefur mikla reynslu af því að útbúa samninga fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Sakamálaréttur

Lögmenn stofunnar hafa áratugareynslu á sviði sakamálaréttar, sem verjendur og réttargæslumenn. Lögmenn stofunnar þekkja þetta réttarsvið mjög vel hvort sem um er að ræða minni eða stærri mál.

Sifjaréttur

Sifjaréttur er eitt af sérsviðum stofunnar, en á þessu sviði hefur einkum einn lögmaður stofunnar sérhæft sig og hefur mjög yfirgripsmikla þekkingu á sviðinu.

Slysabætur

Lögmenn stofunnar hafa áratugareynslu í málum innan skaðabótaréttarins, við innheimtu slysabóta: umferðarslys, vinnuslys og önnur skaðabótamál. Ókeypis ráðgjöf um slysamál og árangurstengd innheimta bóta — bókaðu frían tíma í viðtal með tölvupósti á anno@anno.is.